8.11.2010 | 09:29
Skatteliste
Einn hlutur tíðkast hér í Noregi sem mér finnst bara af hinu góða en kapítalismar eru á móti en það er birting skatttekna og eigna hjá öllum íbúum landsins. Er þetta opið allt árið um kring á vel flestum vefsíðum í Noregi.
Fletti mér að gamni upp og tók afrit af þeim upplýsingum sem þá birtust. Er þetta sett upp á marga vegu en einnig hægt að gera ýmsan samanburð innan póstnúmers er jafnaldra á sama svæði.
Samkvæmt þessu yfirliti þénaði ég 257723 krónum minna eða rétt rúmum 5 milljónum íslenskra en nágrannar mínir í Ás á síðasta ári og átti um 349728 krónum minni eignir eða um 7 milljónum íslenskra króna. Þó kom ég ekki fyrr en í september 2009 til Noregs.
Og þessar tölur sýna svart á hvítu að það er ekki tekið út með sældinni að vera námsmaður í Noregi, eða hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 8. nóvember 2010
Um bloggið
Rafraus Eyjólfs
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar