Og tíminn flýgur áfram ...

allavega er maður að fara í 60% próf á mánudaginn í Theory and Application of Inbreeding Management sem segir manni að þessi önn sé á enda, eitt verkefni eftir í áfanganum sem á að skilast fyrir 28. febrúar. Á þriðjudaginn byrjar síðan vorönn og það verða nú viðbrigði að sjá fólk á nýjan leik og vera ekki lengur alltaf einn í tíma.

Sennilega myndu samt fæstir velja sér sjálfviljugir þau fög sem ég ætla að fara í, kynbótafræðin verður ábyggilega fín og áhugaverð en ég hef aldrei verið mikið fyrir tölfræði eða tölfræðilega útreikninga. En verður maður ekki að ögra sjálfum sér til að ná settum markmiðum, áskorunin að þessu sinn eru því tveir tölfræðikúrsar, annar í dreifnigreiningu og hinn í fjölbreytugreiningu.

Hugsa að prófið á mánudaginn verði ekki mikið vandamál, þó ég hafi misjafnan áhuga á innihaldi hans, hef takmarkaðan áhuga á erfðatæknilega hlutanum þó hann sé ekki síður mikilvægur. Allavega hef ég lítinn áhuga á markerum og snippum (SNP eða einkirni) og vil eiginlega eftirláta erfðafræðingum að einbeita sér af því. Finnst líka lítið spennandi að hugsa til þess að kynbótastarf framtíðarinnar verði fólgið í því að taka stroksýni með bólmullarpinna og senda það síðan í greiningu hjá rannsóknarstofu. Mun skemmtilegar að skoða, rökræða og hafa smá happdrætti í þessu þegar kynbótagripir eru valdir. Þetta er allavega mín skoðun, það eitt er víst að ég ætla mér ekki að starfa sem hvítsloppungur á rannsóknarstofu í framtíðinni.

Allavega hrósaði kennarinn mér eftir síðasta tímann, eða verður maður ekki að taka því sem hrósi þegar hann segir að vísindin þurfi fleira fólk sem hugsi eins og ég. Spurði mig eftir tímann hvað ég ætlaði að leggja fyrir mig að námi loknu og ég svaraði því til, að ég ætlaði starfa við búskap og væri fyrst og fremst að menntan mig til að hafa meiri þekkingu og þá sagði hann „We need more people thinking like you". Burtséð frá því hvort hún muni nokkurn tímann nýtast mér við það sem ég tek mér fyrir hendur.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang hér í Noregi, sólin verið heldur feiminn við að sýna sig og því hefur frostið verið ca. 2-5 gráður undanfarna dag og dimmt yfir að líta. Nóg er af snjónum og heldur bæst við hann en vindurinn er ekkert að flýta sér hér frekar en fyrri daginn, spurning hvort maður þurfi að fara í vindaðlögun á einhverjum annesjum þegar maður kemur heim í sumarfrí.

Ætli maður láti þetta ekki gott heita, ætla ekkert að tjá mig um handbolta, tel Íslandi í góðri stöðu enn sem komið er og vona að þeir vinni fyrrum einræðisherra sína á eftir. Best fara leggja til atlögu við eldhúsið og næra sig eitthvað áður en spennan hefst fyrir framan imbann klukkan 20:00 að norskum tíma.

Þar til næst hafið það gott..........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála þessum kennara..... sérstaklega í ljósi þess að þú ert Framsóknarmaður

Axel Kára (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 18:12

2 identicon

Ekki slæmt hrós þetta og er alveg sammála kennaranum.

Við sjáumst svo einhverntíman á mánudaginn (eftir próf) og setjum kjötið í pækil.

Sigga Júlla (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 18:36

3 identicon

Flott hrós frá kennaranum!

Og brilliant að þú sért að mennta þig svona til að verða betri bóndi. Fólki ætti að vera óhætt að kaupa úrvalsræktaða gripi af þér. Kv. 

Heiða Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rafraus Eyjólfs

Höfundur

Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Í námi við Universitetet for miljø- og biovitenskap.

E-mail: eyjolfuringvi(hjá)gmail.com

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband