Um beitarvörn

Þakka þær athugasemdir sem mér hafa borist, tíminn líður og það styttist í að ég komi heim. Þó ágiskun Vagns Kristjánssonar sé góð og gild þá er hún ekki ástæðan fyrir því að ég skipti um bú, getið spurt mig undir fjögur augu þegar heim er komið og já Björk, ég ætti kannski að fara huldu höfði vegna hennar, hún er í öllum fréttatímum hér úti og talað um brjálaða Íslendinginn sem réðst á ljósmyndara að tilefnislausu, ég ber það nú af mér að hún sé íslensk, er meiri Breti fyrir mér en Íslendingur og Tony spurði mig á hvaða tungumáli hún syngi eiginlega, ég vissi nú ekki hvernig ég átti að útskýra það en við voru sammála um að hún syngi ekki á neinu tungumáli, þetta væri meira svona öskur, sem er held ég bara vissulega rétt. Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá er ég ekki aðdáandi Bjarkar.

En snúum okkur að ferfættu ullarhnoðrunum, í gær fór ég með Graeme og Bob (afinn) á árlega hrútasölu í Gore þar sem eru boðnir upp hrútar og þeir seldir hæstbjóðenda. Þetta var sérstök upplifun fyrir mig þó ég skynjaði þá depurð sem einkennir sauðfjárræktina hér í landi um þessar mundir, þ.e. það var ósköp lítil barátta og dýrasti Coopworth hrúturinn var sleginn á 2200 dollara eða um 110.000 íslenskar krónur. Ástæðan fyrir þessu er sú að hér eru fjöldinn allur að sauðfjárbændum að hætta með kindur, byggja mjaltaskýli, kaupa kýr af því að þeir halda að hvíta gullið gefi þeim meira. Megi þeir hætta fyrir mér, ég myndi þrauka lengur með kindur, finnst allavega ekkert mjög áhugavert að gerast kúabóndi hér. En sala fór þannig fram að allir skoðuðu hrútana vel fyrst og síðan var farið í hliðarsal, þar sem einn og einn hrútur var tekinn fyrir og boðinn upp og sleginn hæstbjóðenda. Finnist einhverjum 110.000 hátt verð fyrir hrút las ég í dagblaðinu hér í gær frétt frá uppboði á hrútum af Perendale kyni og þar verðmætasti hrúturinn sleginn á 675.000 krónur sem mér finnst nokkuð hátt fyrir einn hrút í ljósi þess að hann nýtist kannski bara í eitt ár og afkvæmi hans skila ekki þessar upphæð inn aftur.

Annars hafa verkefnin þessa vikuna verið svona nokkuð klassísk, kleprahreinsun, ormahreinsun og fleira í þeim dúr. Á þriðjudaginn kom dýralæknir hér að taka blóðpróf úr hrútunum og skoða hvort þeir væru hæfir til embættisverka fyrir næsta fengitíma. Blóðprófið er til að ganga úr skugga um að hrútarnir sé ekki með Brucellosis, (kynbótabúin þurfa að láta tékka á þessu áður en þau selja hrúta til annarra bænda) sem ég hef nú ekki alveg kynnt mér til hlítar hvað er en ég kalla það kynsjúkdóm að svo komnu máli. Hann getur smitast á milli hrúta og leiðir til þess að kindur verða geldar sem ekki jákvætt uppá afkomu búsins, smitleiðin er hins vegar vegna þess fjölkvænis sem tíðkast hér á fengitíma, þ.e. hafa 5 hrúta saman í hólfi með ríflega 400 kindum og ef hrútur með þennan sjúkdóm hefur lembt á og svo kemur annar hrútur sem hefur ekki sjúkdóminn lembir ánna líka er hann í hættu á að fá sjúkdóminn líka. Held að sé bara miklu einfaldar að hafa íslenska fyrirkomulagið, einn hrútur í hverja kró (beitarhólf), ekki marga hrúta saman með mörgum ám.

Hér er ein planta mjög algeng og ástæðan fyrir lífsþrótti hennar er beitarvörn hennar. Plantan þessi nefnist þistlar og er alsett litlum nálum. Ég verð nú að viðurkenna að þessi planta er ekkert svo skemmtileg í návígi, heima á Íslandi er önnur planta sem hefur mikinn lífsþrótt og heitir snarrót en kosturinn við hana er að hún hefur engar litlar nálar. Svo ég komi mér nú að sögunni sem ég ætlaði að segja, þá var ég að slá eitt beitarhólf á mánudagsmorgunn þegar ég sé heimska kind fasta í læk sem rann þar til hliðar, ég fer því að hjálpa henni upp og tókst það fyrir rest en síðan þurfti ég að komast aftur yfir lækinn, ég ákvað því bara að taka íslensku aðferðina á þetta eins og ég vanur heima og stökkva yfir skurði nema heima grípur maður yfirleitt í snarrótarbrúsk á skurðbakkanum til að vega sig upp, ég gætti mín hins vegar ekki á því að á lækjarbakkanum hér var pínulítil þistlaplatan að skjótast upp og ég greip í hana. ÁTS var það sem heyrðist og hádegisverðurinn fór í að nota flísatöng til að týna þistlanálar úr höndunum á mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Sæll Eyjólfur

Rakst á bloggið þitt hérna á vefrápi um daginn og hef haft gaman af að kíkja á þig annað slagið.  Væri alveg til í að vera í þínum sporum, sérstaklega núna þegar hér er ákaflega dimmt og kalt.

Ég sé að þeim þarna hinu megin á hnettinum bráðvantar smá snarrót enda veit hver einasti íslenski sveitavargur að snarrótin getur reynst hið mesta þarfaþing sem án efa ber af öllu öðru "illgresi" í heiminum.  Þú ættir kannski að huga á útflutning á íslenskri snarrót til sáningar í lækjarbakka svo nýsjálenskir sauðamenn komist heilir frá því að bjarga heimskum kindum úr lífsháska.

Kveðja frá Hvanneyri

Gunnfríður

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 17.1.2008 kl. 09:14

2 identicon

Kjáni varstu að rífa í þennan þistil....

Mæja (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 09:57

3 identicon

Sælir

Alveg er ég hjartanlega sammála þér með hana Björk, ég hef sagt það lengi að það eigi að afneita henni sem íslending. Afar leiðinleg týpa.

Svo verð ég að bakka með þessa tilgátu mína við síðustu færslu fyrst þú vilt ekki gangast við henni, en ég hefði gaman af að pumpa þetta út úr þér einhverntíman undir fjögur augu og kannski með öli. Sjáum til með það í vor. 

Skemmtu þér nú vel þessa daga sem eftir er með ullurpöddunum og hafðu það gott.

Mbk

Vaggi 

Vaggi (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 12:23

4 identicon

Þessi sjúkdómur getur herjað á nautgripi, hunda og menn, auk sauðfjár. Hann er ein ástæða þess að mjólk er gerilsneydd - þar er smitleið.

Í hérlendum heilbrigðisskýrslum er margrómað að þessi fjári er ekki til á Íslandi - látum svo vera áfram

kv úr snjóparadís

edda (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 19:50

5 identicon

Sæll... Mjög flott síða hjá þér, góðar myndir og texti... Ég er ánægð með þig! ;) kær kveðja. Bryndís Eva og Bjarni

Bryndís Eva (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 20:26

6 identicon

Sælir!

 Alveg sé ég þig fyrir mér þegar þú grípur um þistilinn, og eitt er víst að þú hefur ekki bara sagt ÁTS heldur hefur þú örugglega misst nokkur vel valinn íslensk tækifærisorð út úr þér.

 Ég bíð svo spenntur eftir að heyra lóðerís sögur af þér þegar þú kemur heim!

 Hafðu það gott

 Mbk,

Sveinn Rúnar

Sveinn Rúnar (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 14:05

7 identicon

Sæll Eyjólfur.

lét loksnins verða að því að leita þig uppi og sjá hverning þú hefur það.

gott að þér líði vel og tíminn er að verða búinn hjá þér.

eftir einn mánuð þá munnt þú minnast þessa tíma sem sögu og fyrr en varir verða orðin 20 ár síðan, en þannig er staðan hjá mér.

17 janúar voru 20 ár síðan ég fór til NZ.

auðvitað fær maður heimþrá, skárra væri það nú, en þá hugsaði ég sem svo að þetta væri í raun ekkert meira en að búa á Egillsstöðum.  nema að manni´líður betur ef maður veit að það er ekkert mál að komast heim.

ég dauðöfunda þig af því að vera þarna, en ekki hefði ég far´ð aftur á sauðfjárbúið, sususus, nei ég hefði dvalið hjá Kúnum, en þú skilur af hverju.

vona að þú hafir það sem best vinur og hlakka til að sjá´þig í dyrunum hjá okkur seinna í vetur, ég skal glaður gefa mér tíma til að hlíða á frásagnir þínar.

kveðja Þorgrímur Einar á Erpsstöðum

Þorgrímur (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 20:46

8 identicon

Heill og sæll Jolli..

Heimþrá.. Nei hættu nú... Ekkert svona væl... Æi auðvitað skil ég þig vel.. Ég var með bullandi heimþrá þegar ég var í Afríku en ég reyndi að snúa vörn í sókn og sagði við sjálfa mig að þetta væri bara "tilhlökkun að fara heim"... je sjúr... En ég túlka heimþrána þína bara þannig að þú saknir Hvanneyrar og félagslífsins þar.. Ó já.. sama hér... Þessa stundina er ég á hóteli í Gvatemala að hlusta á brjálaðan apa öskra eins og 10 ljón og ég er með hvínandi skitu.... Dagur tvö á klóstinu..  Alveg sama þótt ég sé að upplifa klikkuð ævintýri og nýja menningarheima ég get ekki hætt að sakna Hvanneyrar og Valda í Svíþjóð.. En maður má ekki gleyma því að njóta augnabliksins.

Passaðu þig svo á þistlunum... Ég var sífellt að þvælast í brenninetlunum í haust og það er VONT... svo ég kannast við þetta.

Kveðjur frá Gvatemala

Guðrún B.

Guðrún Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 06:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rafraus Eyjólfs

Höfundur

Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Í námi við Universitetet for miljø- og biovitenskap.

E-mail: eyjolfuringvi(hjá)gmail.com

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband