29.1.2008 | 07:09
Tilraun tvö
Best að reyna aðra tilraun til að setja inn færslu misfórst eitthvað í gær vegna tæknilegra örðuleika í Haast, þannig að þið eigið eiginlega að lesa neðri hlutann af færslunni fyrst áður en þið lesið þennan. Ég er allavega kominn til Greymouth núna, smá þorp, litlu minna en Akureyri og aðeins stærra en Kópasker, eftir frekar tilbreytingalítinn akstur í rúma 300 kílómetra.
Eiginlega hafa síðustu 500 kílómetrar verið hálftilbreytingalitlir, keyra eftir vegi og á hægri hönd er skógur, einnig á þá vinstri og því afskaplega lítið á sjá nema maður líti upp og þá er maður ekki með augun lengur á veginum. Nýsjálenskir vegir eru nokkuð sérstakir, eftirfarandi er lýsing á stuttum vegarkafla sem ég keyrði í dag og má yfirfæra á mestan hluta af þessum 500 km. Keyrir áfram, kröpp beygja til hægri, niður brekku, kröpp beygja til vinstri, einbreið brú, kröpp beygja til hægri, upp brekku, kröpp beygja til vinstri, beinn kafli í 500 metra, kröpp beygja til vinstri, niður brekku, einbreið brú, kröpp beygja til hægri upp brekku, hugsa sé best fyrir ykkur að teikna þetta á blað til að skilja.
Ég leiddi því hugann að ýmis meðan ég mjakaðist áfram þennan vegarspotta í dag því ég hélt mig mestmegnis innandyra í bílnum, því í hvert sinn sem ég steig út varð ég fyrir fólskulegri árás moskítóflugna sem þykir blóð mitt voða bragðgott, eins og þær hafi vaknað úr dvala við regnið í nótt. Af tveimur misgóðum kostum er betra að vera í of miklum hita en innan um helvítans flugurnar. GRRR! En já það sem ég leiddi hugann oft að í dag var að það þarf að varðveita sérstakalega suma vegi á Íslandi eins og Hellisheiði eystri (sérstaklega beygjurnar) og alls ekki reyna að græða upp Mýrdalssand, hvað þá með svínaskít frá Hollandi eins og hugmynd eins af þessum 63 sem stjórna Íslandi hljóðaði þegar ég hitti hann fyrir tæpu ári í Blóðbankanum. Því náttúrufegurð þessara staða er mikil fyrir ferðamenn sem heimsækja Ísland.
En ég skoðaði Fox Glacier skriðjökulinn og Franz Josef jökulinn í dag, dæmigerðir jöklar sem hafa hopaði mikið undanfarin ár líkt og íslenskir jöklar og haldið ekki að ég hafi lent í skoðannakönnun um aðgengi að ferðamannastöðum þegar ég var að fara frá Fox Glacier, aldrei friður, GALLUP allsstaðar. (Reynar GALLUP þeirra Kívíbúa). Best að hætta þessu þvaðri í bili, víst heillangur texti að lesa núna, skemmtir vonandi einhverjum í tilbreytingarlitlum fyrirlestri á Hvanneyri, reyni sennilega að skrifa hér eitthvað áður en ég yfirgef NZ næsta mánudag.
Hér kemur svo færsla sem átti að koma í gær !
Er núna staddur í Haast sem er lítið þorp á vesturströndinni, keyrði hingað í dag frá Queenstown þar sem ég dvaldi um helgina í alltof miklum hita, á flestum skuggsælum stöðum leið mér vel. Hér komst ég í netsamband þar sem ég gat skrifað færslu á mitt íslenska lyklaborð og setti inn nokkrar myndir. Veðrið hér þessa stundina er afskaplega milt og gott, skýjað og lítilsháttar suddi eða svona dæmigert vorveður á Íslandi.
Síðasta deginum hjá þeim Graeme og Raewyn Black rennur mér seint úr minni því hann var nokkuð merkilegur hvað varðar öll tæki sem ég snerti og setningin Oh dear Jolli" heyrðist nokkuð oft þann daginn. Fyrst var ég sendur til að hreinsa eitt beitarhólf, það gekk ágætlega framanaf, drifskaftið var á sínum stað og því engin vandræði með það, vandræðin hófust þegar ég fór að nálgast vatnsstampinn í hólfinu, þegar ég var að hreinsa í kringum hann vildi ekki betur til en að vélin rann aðeins til og sláttuvélin beint á stampinn. (Hefði alveg mátt koma í veg fyrir þetta með því að vera á minni ferð og stampurinn er úr STEYPU) Það segir sig náttúrulega að sláttuvélin virkaði ekki alveg rétt eftir þennan árekstur en við gátum nú lagað það. Þegar ég hafði klárað umrætt hólf var ég sendur í næsta hólf, þegar ég var hér um bil að verða búinn með það (átti bara helgidagana og úthringinn eftir), hvað haldið þið að hafi komið þá fyrir, nú það sprakk annað framdekkið á dráttarvélinni og því ekki hægt að halda áfram. Var þá haldið í heyskap enda sæmilega þurrt þennan daginn og reynt að ná heyinu sem ekki náðist í 30 stiga hitanum dagana þar á undan, baggarnir voru frekar illa þurrir og þungir eftir því, baggahirðingi var með aðeins öðruvísi hætti en ég er vanur en hana má sjá í myndunum sem ég setti inn. Ég var hafður í rauða trukknum og flutti baggana að skýlinu þar sem þeir eru geymdir, eftir dágóðan tíma eða þegar nokkrir baggar voru eftir var sprungið á trukknum líka og í þokkabót varadekkið loftlaust. Það tókst nú að koma trukknum heim fyrir rest en allt er þegar þrennt er segir máltækið og það held ég að hafi alveg átt við þennan daginn.
Á föstudagsmorgninum lagði ég síðan af stað í ferðalag mitt um suðureyjuna, kom við hjá kúabóndanum Tony og lét hann hafa stígvélin mín, eini nýsjálendingurinn sem hugsanlega getur notað svona bigfoot stígvél. Held meir að segja að Tony og Vicki ætli að koma einhvern tímann til Íslands til að sjá þessa sérstöku kúabændur sem mjólka 50 kýr með róbóta (Lazy Bastard eins og Tony orðaði það) og þessa sérstöku þjóð sem hefur eigið tungumál og gjaldmiðill fyrir 300.000 hræður. Á föstudeginum keyrði ég til Alexandra sem er með heitustu stöðum NZ á sumrin, þó voru ekki nema 25°C þar þegar ég var á ferðinni, daginn eftir keyrði ég til Queenstown, á leiðinni þangað kom ég við í gamalli gullgrafaranámu þar sem ferðamenn geta gerst gullgrafarar og leitað að gulli, ég fann þó ekkert og varð ekki ríkur af þessari heimsókn.
Eins og áður sagði var of gott veður til að gera eitthvað í Queenstown, ég fór þó í bíó þar í litlum sal og var sætanýting eitthvað um 6%, man ekki nafnið á myndinni í svipinn en sætanýtingin var svipuð og þegar ég vildi ólmur fara og sjá stórmyndina Babe þegar hún kom í íslensk kvikmyndahús á uppvaxtarárum mínum, ekki margir í bíó þá. (Reyndar eittbíó eftir hádegi) Einnig fór ég með gondola kálf upp á fjallið fyrir ofan Queenstown og naut útsýnisins í tæplega 800 metra hæð yfir borginni, ekkert svo svakalegt að fara með þessum kálf upp væri mun skemmtilegra í mátulega miklum vindi heima á Íslandi.
Svo ég endi þennan pistil einhvern tímann fór ég líka á veitingahús enda stór og svangur maður sem þarf mikið að borða. Ég skoðaði matseðilinn og leist vel á rétt sem heitir Beef and vegetables" og bað um stóran skammt. Og svo ég taki það fram þegar ég bið um kjöt þá vil ég fá kjöt en þegar diskurinn var borinn á borð fyrir mig fórnaði ég höndum, það sem ég sá var einn brokkólí haus, einn blómkálshaus, einn laukur, gulrót, slatti af hvítkáli mixað saman við 100 gr. af kjöti. Þetta var því 90% grænmeti, 5% sósa og 5% kjöt, það bjargaði því þó að þetta bragðist ágætlega og ég fór því ekki svangur heim en hugsa að það væri mun nær að kalla þennan rétt Vegetables with little beef".
Veit ekkert hvenær ég skrifa næst hér inn en þangað til þá ...
Um bloggið
Rafraus Eyjólfs
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 37600
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Ég er allavega kominn til Greymouth núna, smá þorp, litlu minna en Akureyri og aðeins stærra en Kópasker" Nú er ég sár. Eyjólfur, þú ert að bera afdala kívíþorp sem er hinum megin á hnettinum saman við höfuðstað norðlendinga einn grónasta, byggilegasta, fallegsta og besta stað í veröldinni. Jolli ertu komin með einhverja hitapest?. Að auki er fjörðurinn sem Akureyri stendur við mekka landbúnaðar á Íslandi og hvergi fyrirfinnast önnur eins ræktunarlönd auk þess sem bændur úr eyjafirði standa öðrum íslenskum bændum langt um framar.
Ekki bera smá þorp og Akureyri saman, frekar Bandaríkin og Akureyri.
Jolli minn, gættu að hvað þú ritar og vertu duglegur að drekka vatn og mjólk, það hreinsar líkamann
Mbk og hafðu það gott í ferðalaginu
Vaggi
Vaggi (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 12:03
Það er ljóst að ég hugsa mig allavega tvisvar um ef þú biður einhverntíma um að fá lánaðan hjá mér bíl eða annað tæki...
Ég má þó til með að segja að það er ansi fallegt þarna suðurfrá... allavega miðað við það landslag sem þú hefur myndað hingað til.
og jiii hvað ég er spennt að sjá þig, hel köttaðan og tanaðan í drasl...
Mæja (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 15:53
Hvað meinarðu með að "skemmta einhverjum í tilbreytingarlitlum fyrirlestri á Hvanneyri"... Ekki heludurðu að krakkarnir séu að hanga á netinu í tímum... Glætan....
Verð víst að viðurkenna að netið og MSN kom mér lifandi í gegnum tölfræðitíma dauðans á sínum tíma...
Hvernig gengur annars að semja spurningar fyrir Viskubeljuna? Hvenær er hún annars? Á maður að gera sér ferð heim?
Besut kveðjur frá Svíþjóð
Guðrún B.
Guðrún Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 12:17
Hehe af þessum ævintýrum þínum á bænum má dæma að fólk á sko ekki eftir að gleyma honum Eyjólfi Ingva frá Íslandi. Gott þetta, klára þetta með stæl:)
Skil ekki hvað Vaggi er að væla, hann hlýtur nú bara að vera kominn með óráð sjálfur hehe...
Skil þig svo vel með moskítófluguhelvítin, veit um eitt efni sem hefur virkað á kvikindin. Það er eitthvað ægilegt rollon sem heitir Jungle Formula. Með því að rúlla svoleiðis á sig heyrði maður bremshljóðin í loftinu þegar þær komu til að stinga og snarhættu við.
Kveðja,
Halla
Halla (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.