Heim í heiðardalinn

Ég er núna kominn heim í Ásgarð og það er mjög gott, feginn að þetta ferðalag er búið, hef fengið alveg nóg af því að sitja í flugvél og öryggiseftirliti á flugvöllum, flugið frá Hong Kong til London var í það lengsta, held að það hafi verið komnir hátt í 15 tímar frá því ég fór inní vél og uns ég labbaði út úr henni.

Gerið ekki nema smávægilegar skissur í umferðinni í dag, byrjaði náttúrulega á því að reyna að gefa stefnuljós með rúðuþurrkunni en af augljósum orsökum gekk það ekki, tók síðan eina vinstri beygju og fór náttúrulega inná ranga vegarhelming, fattaði það fljótt því mér fannst þetta eitthvað bogið,  komst alla vega alla leið og fannst bara hressandi að keyra í smá hálku og hríðarveðri yfir Bröttubrekku.

Læt þetta duga í bili, veit ekkert hvort ég á eftir að skrifa meira hér, bíða mín alltof mörg verkefni í skólanum næsta mánuðinn af augljósum orsökum en ég held að ég fari að skella mér í Draumalandið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja gott að þú ert komin heill heim og margfald ríkari af lífsreynslu. Maður metur ýmislegt öðruvísi þegar heim er komið, eins og þú nefndir fagnar meira segja hálkunni!!

Fyndið hvað þetta er rosa fljótt að líða. Mér finnst þú ný farin út.

jæja góða helgi á Íslandi

kv

HB

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 20:31

2 identicon

Blessaður Eyjólfur,

þú hefur sumsé komist á hinn helminginn - boðar ekki fyrsti farfuglinn vorkomuna?

Láttu heyra í þér þegar þú kemur aftur til Nýja Sjálands,

kv,

        Einar Örn
 

Einar Örn Hreinsson (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rafraus Eyjólfs

Höfundur

Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Í námi við Universitetet for miljø- og biovitenskap.

E-mail: eyjolfuringvi(hjá)gmail.com

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband