11.3.2008 | 19:19
Bíllinn minn ...
... fékk útgefið dánarvottorð af bilanagreiningu Toyota í dag sem ég á bara eftir að kvitta undir. Gallinn er bara sá að ég á ekki pening til kaupa nýjan bíl eins og er eftir utanlandsferð og tölvukaup. Bíð samt með eftirvæntingu eftir námslánunum, þarf að tileinka mér fátæklegan námsmannamat á næstunni sem samanstendur af núðlum og svoleiðis góðgæti í hvert mál.
Um bloggið
Rafraus Eyjólfs
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 37525
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú átt alla mína samúð. Vegna sjálfrennireiðarinnar því fátt er blóðugra, að mínu mati, en að þurfa að punga út fjármunum í slíkt. Og vegna núðlana því svoleiðis "góðgæti" telst nú varla mönnum bjóðandi. A.m.k. ekki til langframa. Þú getur þó huggað þig við það að það styttist í páskafrí sem þýddi, a.m.k á mínum sultarnámsárum, að maður komst heim í matinn hennar mömmu.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 12.3.2008 kl. 10:05
Þér er hér með boðið í mat þegar þú verður svangur:) Láttu mig bara vita og ég skal gefa þér tilraunamat (ekki núðlur:))
Kveðja,
Halla
Halla (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 15:01
Hahaha, gaman að sjá að það eru fleiri námsmenn á sultartímabili. Eini munurinn er sá að hjá mér er það bjór en ekki núðlur sem fara inn fyrir mínar varir;) Hann er allavega ódýrastur hérna í Danaveldinu!
Med venlig hilsen
Sigurborg Ósk
Sigurborg Ósk (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.