10-01-10

Þá er maður mættur til Noregs enn eina ferðina, kom hingað á þrettándanum eftir svefnlítið ferðalag frá Íslandi, var allavega fengin að leggjast til hvílu og sofnaði strax þrátt fyrir kuldann sem hefur verið hér, jafnt innan sem utandyra, hér dugar ekkert nema lopapeysan og föðurlandið. Var rúmlega 20 stiga frost í vikunni, sá að það fór í -29°C á föstudaginn í nágrenni við bygginguna sem ég sæki tíma. Núna veðja ég á að frostið sé milli 15 og 20 gráður og verður svoleiðis eitthvað fram í vikuna. Allavega met ég frostið eftir því hversu mikið er af frostrósum er á svefnherbergisglugganum þegar ég vakna.

Ferðin gekk ágætlega hingað út nema árans konan í Leifsstöð lét mig borga yfirvigt á farangurinn minn, ég sætti mig nú við það þar sem hann var að mestu leiti íslenskur matur svona svo maður geti eldað almennilegar máltíðir öðru hvoru fram á vor. Hins vegar er veðrið mjög falllegt hér, þó það sé kalt að labba í skólanna núna. Hér hreifir allavega ekki vind mjög mikið, enda ef það gerðist yrði mikil bylur, þar sem að hér er ≈50 cm jafnfallinn snjór yfir öllu.

Áfangarnir fyrir jól gengu alveg bærilega, hlaut ég B í meðaleinkunn fyrir þessa fyrri önn mína hér í Noregi. Enda stendur B fyrir margt gott í lífinu. Í prófunum tveimur sem voru 5 einingar hvort fékk ég C en í stóra verkefnaáfanganum, 10 einingar, þar sem ég var m.a. að læra BLUP útreikninga hlaut ég A. Þó ég segi sjálfur frá er ég nokkuð ánægður með það, þar sem ég var sá eini sem hlaut þá einkunn.

Núna er ég í einum áfanga í janúarblokk sem fjallar um skyldleikarækt, 10 eininga áfangi þar sem kennsla klárast 22 janúar, próf 25 janúar og þá byrjar ný önn. Það sem mér finnst hins vegar merkilegt við þennan áfanga er að kennarinn kemur frá Skotlandi til að kenna sárafáum einstaklingum, var einn í tíma á fimmtudag. Á föstudaginn vorum við helmingi fleiri, veit ekki hvernig það verður á morgun, erum 5 skráð í þennan áfanga. Í byrjun fimmtudagstímans var ég einn í stofunni, svo kemur kennarinn eftir smá stund, ég hélt áfram að vinna í tölvunni í smá tíma, þegar ég lít síðan upp blasir kennarinn liggjandi fram á kennaraborðið hreyfingarlaus, mér varð nú hálf bilt við þetta og íhugaði augnablik að fara fram og fá hjálp en þá reis hann upp aftur, lét ég þá líða smá tíma og lét vita af mér. Hann sagði þá: „Svo þú er einn af þessum fáu nemendum mínum".

Annars leið jólafríið of fljótt, dvaldist ég mestan tíma þess í fjárhúsunum við gjafir og önnur þau verk sem þar þarf að vinna á þessum árstíma. Sæddi frekar fáar ær þetta árið, voru fáar að ganga og stærri hluti þeirra gekk upp enda sæddi ég flestar með dagsgömlu sæði, þar sem fleiri ær voru að ganga þann daginn. Ætti þó að fá lömb undan Hróa í vor, jafnvel Kjark, Karli, At og Raft ef þessi eina kind sem eftir er undan hverjum heldur.

Síðan vona ég að Norðmönnum þóknist að prófa mig tímanlega í maí svo ég komist heim í sauðburð um miðjan mánuð en uppúr þeim tíma ber stærri hlutinn af ánum á vikutíma. Vona innilega að síðasta próf mitt verði 14 maí, kemur í ljós í þessari viku, verst að geta ekki haft eins mikil áhrif á prófdaga hér eins og þegar maður var á Hvanneyri. Verð bara reyna senda þeim hugboð.

En þangað til næst hafið það gott, endilega kvittið .........................

Nokkrar myndir úr vetrarríkinu hér úti: Inngangurinn að íbúðinni minni í vetrarríki.  Séð frá einum af gatnamótunum í Ási á leiðinni heim og síðan skilti hlaðið lausamjöll, tel afar ólíklegt að snjór geti stoppað í  hálfan mánuð á íslenskum skiltum.

IMG 5140IMG 5147IMG 5150


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður til hamingju með árangurinn - og mér sýnist nú að þú standir upp úr fönninni ... ennþá

edda (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 22:04

2 identicon

Góðan daginn og gleðilegt ár og til hamingju með góðan árangur. Hvernig er upphitun þarna? eða einangrun í húsum? Búa menn ódýrtog/eða erum við á villigötum hér heima?

Hvernig stóð Kveikssonur sig við verkin?

Máni Laxdal (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 13:16

3 Smámynd: Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Hér er einangrun í húsum lítil sem enginn, allavega það sem ég hef kynnst. Til að hita upp nota menn viðarkyndingu og eitthvað af rafmagnsofnum, en rafmagn er dýrt hér enda öll raforkufyrirtæki orðin einkavædd. Held að sé mjög breytilegt hvernig menn búa hér, sumir búa flott aðrir svona temmilega, held samt að sé meira norm hér en heima á Íslandi, sjást ýktari dæmi þar í flottheitum. Annars er ég ekki búinn að skoða nógu mikið til að geta dæmt alla Norðmenn.

 Þráður stóð sig bara ágætlega, lembdi allavega allra þær ær sem undir hann var haldið, þó fannst honum mikil afskiptasemi af okkur að vera taka sig úr ánum á hverju kvöldi, var lítið ánægður með það.

Eyjólfur Ingvi Bjarnason, 12.1.2010 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rafraus Eyjólfs

Höfundur

Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Í námi við Universitetet for miljø- og biovitenskap.

E-mail: eyjolfuringvi(hjá)gmail.com

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband