Prófatíð

er afskaplega leiðinlegt fyrirbæri, hvað þá á vorin þegar sauðburð og vorverk kalla mun meira á mann en lestur doðranta sem maður hefur trassað allan veturinn.

Það er meir að segja svo að mér finnst mun skemmtilegra að lesa allt annað en námsefnið og merkilegt nokk fann ég ekki svo gamalt Búnaðarrit og fann þar kafla eftir Halldór Pálsson um stefnur í sauðfjárrækt á Íslandi.

Þar segir hann frá því að á Ráðunautafundi 1977 hafi einn ungur maður haldið því fram að íslenska féð hefði verið kynbætt svo mikið síðustu 30-40 árin m.t.t. vaxtarlags og kjötgæða að nú væri svo lítill gæðamunur á I verðlauna og III verðlauna hrútum, að varla væri ástæða til þess að leggja í þann kostnað sem hrútasýningum fylgdi til að bæta kjötgæði meira en orðið væri. Ennfremur segir Halldór að þó þessi skoðun nyti ekki meirihlutafylgis þá var það samt auðheyrt að yngri kandídatar sem lært höfðu hóperfðafræði lögðu lítið upp úr útlistdómum á sýningum og töldu að vært tæki að vinna að öðrum kynbótum en á þeim eiginleikum, sem illu eða góðu væri hægt að koma upplýsingum um í tölvu. Svo hnykkir Halldór aftan við GEFI MENN SÉR TÍMA TIL MÁ KOMA FLESTU Í TÖLVU.

Eitt er allavega víst að íslenska féð hefur breyst mikið frá því 1977 og þar spila möguleikar tölvuheimsins stóran þátt en á það kannski eftir að breytast enn meira með hjálp tölvutækninnar eða þarf maður kannski að ýta á bremsuna og stunda meiri hugsjónarækt eins og fjárræktarmenn fyrir tölvuöld gerðu. Á tölvan jafnvel eftir að taka yfirhöndina af okkur mönnunum í framtíðinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já , hverning er með stóru gimbrina (Raftsdóttir) sem fæddist á Hesti, er þetta eitthvað "tölvulamb" ?

Torfi (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 23:00

2 Smámynd: Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Það er spurning, ætli það sé nú ekki sambland margra tilviljankenndra þátta sem stjórnuðu því, erfðir, umhverfi og svo kannski tölvurnar með kynbótum undanfarinna áratuga. Ég kalla samt ánna nokkuð góða að hafa komið þessu flykki því sem næst hjálparlaust frá sér.

Eyjólfur Ingvi Bjarnason, 5.5.2008 kl. 15:14

3 Smámynd: Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Svona svo ég komi nú smá speki og lífsreynslu til mér yngri manna þá get ég sagt þér að prófatíðin tekur þó amk enda og þá ertu laus allra mála þar til næsta haust eða svo að segja.  Þessi fjandans vinna er því miður ekki eins svo það er jafnvel ennþá erfiðara að púsla inn þessum nauðsynlegustu viðburðum, s.s. sauðburði og göngum, þegar maður er hættur að taka próf í prófatíð og í þokkabót farin að vinna.  Svo hafðu þetta í huga þegar þú ákveður framhaldið.  

Um gimbrarkvikindið hef ég mínar eigin kenningar sem ég ætla ekki að birta hér svo ég verið nú ekki rekin frá Landbúnaðarháskólanum fyrir að níða niður tilraunabúið, en án efa er þetta eitt allra ljótasta nýfædda lamb sem ég hef augum litið.  Ég hélt reyndar þangað til núna að öll sæmilega réttsköpuð nýfædd lömb væru ljómandi falleg en "boy o boy, was I wrong!!!"

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 5.5.2008 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rafraus Eyjólfs

Höfundur

Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Í námi við Universitetet for miljø- og biovitenskap.

E-mail: eyjolfuringvi(hjá)gmail.com

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband