4.11.2007 | 06:10
Lýsi eftir 3. nóvember 2007
Ég er kominn heilu og höldnu til Nýja-Sjálands eftir mjög langt flug og er að keppast við það þessa stundina að halda mér vakandi eitthvað fram á kvöldið en tímamismunurinn er +13 tímar m.v. Ísland. Ég varð aldrei var við laugardaginn 3. nóvember 2007.
Ferðalagið snemma morguns í London við það að koma sér út á Heatrow, gekk það ágætlega enda var ég vel haldinn eftir staðgóðan morgunverð þeirra Breta á hótelinu. (Egg, beikon og bakaðar baunir). Þegar ég kom að innritunarborðinu tók afgreiðslukonan voða tíma í að skoða vegabréfið mitt og hleypti mér loksins í gegn en spurði um handfarangur og ég sýndi henni töskuna mína. Hún bað um að ég setti hana á vigtina og sagði svo: This is too much, you can kill someone with this handbag" og ég varð náttúrulega eins og algjör auli en fór þarna á fjórar fætur á miðju gólfinu með langa röð af farþegum á eftir mér í innritun og færði bækur á milli taskna og fékk voða fallegan rauðan miða um yfirvigt á aðaltöskuna mína. En þetta fór í gegn og skipti mestu máli. Þarna skipti Kynbótafræðibókin höfuðmáli en hún er mun þyngri en hún lítur út fyrir að vera. Spurning um að senda hana í pósti heim um miðjan desember svo hún valdi mér ekki erfiðleikum á heimleiðinni líka.
Ég hélt síðan áfram leið minni um borð í flugvélina og fékk gluggasæti í þessu rúmlega 26 tíma maraþonflugi. Ég gat því drepið tímann með því að horfa út um gluggann á leiðinni vestur um haf, sá samt voða lítið fyrr en yfir miðjum Bandaríkjahreppi og þegar fór að styttast í Los Angeles og sá ekkert yfir Kyrrahafinu enda kolniðamyrkur og nótt meðan við ferðuðumst þar yfir. Sá alla ferningana í landslagi hjá kananum mjög vel og þjóðvegina dregna með reglustiku eftir eyðimörkinni ásamt því að sjá eyðilegginguna sem hluti að skógareldunum hafa ollið í Kaliforníu undanfarið.
Innan flugvélarinnar var nóg sem ég gat gert mér til dundurs, ég var með bækur með mér, nennti samt ekki að lesa mikið en byrjaði þó aðeins á nýju bókinni eftir Arnald Indriðason, síðan var í stólbakinu fyrir framan mig þessi fíni tölvuskjár og þar gat ég valið úr fjölda kvikmynda að horfa á (m.a. nýsjálensku stórmyndina Black Sheep), hlustað á tónlist, spilað tölvuleiki eða fræðst um hitt og þetta. Gerið mest af því að hlusta á tónlist og valdi mér yfirleitt mjög svefnvæna tónlist. Ferðin til Los Angeles var fín vorum þá tvö með þrjú sæti en síðan var vélin full þaðan til Auckland og það var aðeins meira en segja það fyrir mig að sitja í þeim þrengslum í tæpa 13 tíma (Stóð tvisvar upp þennan tíma). Á tíma leið mér vægast sagt illa, bæði vegna þess að það var mjög heitt í vélinni sem fylgdi mikil ógleði enda held ég að þjóðarréttur Breta hafi ekki farið neitt allt og vel í maga hjá mér fyrir þetta langt flug í sambland við misgóðan flugvélarmat fyrst í fluginu. Einnig var alltaf öðru hvoru smá ókyrrð í loftinu yfir Kyrrahafi sem bætti ekki ástandið. Reyndi að sofa þetta úr mér og þetta slapp nú allt saman fyrir rest en ég var dauðuppgefinn þegar við lentum í Auckland snemma í morgun og ég fór í gegnum vegabréfseftirlitið og tollinn þar.
Fór síðan að sækja farangurinn minn og var farinn að örvænta um að yfirvigtartaskan mín hefði orðið eftir í London því allir aðrir voru komnir með farangurinn sinn en ekki ég, hún kom svo fyrir rest (örugglega síðust) og ég hafði rétt tíma til þess að bóka mig í flugið hingað yfir á Suðureyjuna til Christchurch. Þangað er ég kominn núna dvel hjá Þorbjörgu, sennilega fram á þriðjudag meðan ég er að leiðrétta tímamismuninn og átta mig á hlutunum. Það besta var samt að konan á innritunarborðinu í Auckland sleppti mér við að borga sekt fyrir yfirvigt þar sem ég var að koma svona langt að og ég var voða kátur með það enda hefðu sennilega fokið nokkrir þúsundkallar þar.
Hér er núna hið ágætasta veður enda er vor og sumarið á næsta leiti, ég fékk mér göngutúr út í einhvern garð hér í nágrenninu í dag og setti inn nokkrar myndir úr honum, takið sérstaklega eftir rafmagnslínunum á einn, veit ekki hvort þessi frágangur myndi viðgangast á Íslandi.
Held áfram að berjast við Óla lokbrá, ætla að halda mér vakandi aðeins lengur fram á kvöld, klukkan rúmlega sjö að kvöldi þess fjórða. Best að hætta þessari þvælu núna enda nóg komið í bili. Læt vita af mér næst þegar ég verð kominn nálægt borginni Gore en myndi áætla að það yrði á miðvikudag/fimmtudag. Get samt sagt eitt að lokum það er ekkert mjög spennandi að fara í svona langt flug, mig langar allavega ekki neitt voðamikið að fara í slíkt flug strax aftur, er búinn að sofa kannski 6-7 tíma við slæmar aðstæður af síðustu 48 klst.
Um bloggið
Rafraus Eyjólfs
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vel byrjar það...
Mæja (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 16:40
Það var verulega gaman að heyra frá þér hinum megin úr veröldinni! Við fylgjumst spennt með, þó það verði reyndar æði stopult, sem við komumst í netið. Erum núna í Haro, sem er á miðju Rioja vínræktarsvæðinu á Spáni, einhvern tíman á leiðinni til Toledo og Madridar.
Gangi þér vel með tímamismuninn!
Gunnar & Sigga, Sólheimunum
Gunnar & Sigga (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 17:12
Gott að heyra að flugið hafi gengið vel þó þú hafir lítið getað sofið. Ég sagði þér að breskur morgunmatur væri ekkert til að hrópa húrra yfir
Manni finnst hálf skrítið að hugsa til þess að bráðum sértu að fara á fætur og maður sjálfur fara á sofa. Eiguð góðan mánudag og gangi þér vel að ná áttum, heyrumst vonandi á msn í kvöld.
Kv. Gagga systir
Ingibjorg (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 17:39
Hej!
Gaman að geta fylgst með þér þarna hinu megin á hnettinum- ég verð bara að segja það að mig hefur alltaf langað til Nýja Sjálands og ég var meira að segja búin að finna mér skóla í Christchurch til að taka masterinn (en það er bara svolítið dýrt)! Svo talar Vaggi alltaf um að Ný Sjálendingar séu heimsmeistarar í að rýja ;)
Annars bara óska ég þér góðrar skemmtunar :)
Kveðja frá Uppsala,
Lilja
Lilja Fil (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 18:37
Djöfull ertu að missa af góðum tíma í kynbótafræði maður.... eða ekki. Ég hitti einu sinni Ný-Sjálending sem vann í sláturhúsinu á Króknum, bið að heilsa honum ef þú sérð hann, lágvaxinn og sköllóttur.
Kv. Seli
Axel Kárason (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 11:50
Sælir.
Ég get vel trúað að flugið hafi verið þreytandi. Það er samt erfitt að vorkenna manni sem gúffar í sig eggjum, beikoni og bökuðum baunum rétt fyrir 27 tíma flug.
Ein spurning: Hvernig leið liðinu í næstu 6 sætaröðum framan og aftan við þig í fluginu. Morgunmaturinn hlýtur að hafa verið farin að segja til sín og það er örugglega ekki gott að hafa íslenskan risahrút með vindverki í næsta sæti og vita að það séu 25 tímar í lendingu. oj
Hafðu það sem best þarna hinum megin og vertu duglegur að láta vita af þér.
Mbk
Vaggi
Vaggi (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 13:31
Sæll Eyjólfur Kivi
Greinilegt að kynbótafræðin er ÞUNGT fag:) Veistu það að 3. nóvember var ekkert svo merkilegur sko að það var bara gott hjá þér að sleppa honum úr...
Eitt ráð sem frænka mín átti í pokahorninu þegar hún var uppfull af gasi og magagasverkjum og það var að fara inná salerni í lest og standa á höndum. Þetta víst svínvirkaði... Þannig að ef þú lendir í vandræðum eftir enskan morgunverð geturðu haft þetta í huga
Halla (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 19:16
Jæja drengur
Horfðiru ekki á Black Sheep svona til að hita upp áður en þú dembir þér út í sauðfjárræktina í Nýja Sjálandi? Það er nú gott að vita hvernig þeir höndla þessar skepnur þarna hinumegin áður en maður byrjar ;)
Steingrímur (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 22:32
Jæja gamli!!
Gott að vita þú ert kominn á leiðarenda og getur hafist handa við að kynna þér Ný sjálenskan sjálfsþurftarbúskap. Ég vona að þú skemmtir þér vel þarna á hjara veraldar og vonandi eiga samskipti þín við innfædda eftir að vera ánægjuleg. Reyndar kæmi mér ekkert á óvart þó að þú ættir eftir að setja þarna að og eignast tíu litla negra stráka og búa á sauðfjárbúinu New - Asgardur. En það kemur allt í ljós fyrr en seinna.
farðu vel með þig!
P.S.
Notaðu sólarvörn!
Sveinn Rúnar (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 11:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.